Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 1,7% í dag og stóð við lok markaða í 4.314 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var í dag um 2,7 milljarðar sem er talsvert yfir því sem gerst hefur í vikunni. Þar af var um milljarður með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 540 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], tæpar 380 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] og um 350 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en talsvert minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst nokkuð í morgun eða um 0,9% en gengisvísitalan er nú 158 stig.