Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,02% og er 7.093 stig við lok dags, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 9,8 milljörðum króna.

Kaupþing hækkaði um 0,63% og er eina félagið sem svo gerði.

Tryggingamiðstöðin lækkaði um 1,43%, Bakkavör Group lækkaði um 1,34%, Actavis Group lækkaði um 1,28%, Eimskip lækkaði um 0,93% og Glitnir lækkaði um 0,39%.

Gengi krónu veiktist um 0,02% og er 122,3 stig.