Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,1% í dag og stóð við lok markaða í 653 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,6% í gær.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins eitt félag, Össur hækkaði í dag. Össur leiddi hækkun gærdagsins.

Velta með hlutabréf er tæpar 69 milljónir krónur en þar af eru tæpar 40 milljónir með bréf í Össur.

Þá er velta fyrir tæpar 15,5 milljónir með bréf í Century Aluminum, um 7,6 milljónir með bréf í Marel og um 3 milljónir með bréf í Bakkavör.