Century Aluminum [ CENX ] hækkaði mest allra fyrirtækja í dag eða um 4,5%. Þá hækkaði Landsbankinn [ LAIS ] um 1,3% og Bakkavör um 1,12%.

Eik banki [ FO-EIK ] lækkaði mest í dag eða um 2%. Þá lækkaði Marel [ MARL ] um 1,45% og Össur [ OSSR ] um 1,2%.

Sé miðað við önnur viðskipti í Kauphöllinni var mikil velta með bréf í Glitni [ GLB ] eða tæplega 3,2 milljarðar. Þá voru ein stök viðskipti upp á 2,7 milljarða.

Einnig voru nokkur viðskipti með bréf í Landsbankanum en velta með bréf þar var tæplega 1,5 milljarður.

Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 0,7%