Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,71% í dag og var 7.383,42 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum Kauphallarinnar.

Eimskipafélag Íslands hækkaði um 2,39%, Kaupþing um 1,59%, Teymi um 1,36%, Tryggingarmiðstöðin um 1,08% og Atlantic Petroleum um 0,82%.

Alfesca lækkaði um 2,57%, Össur um 0,8%, Icelandic Group um 0,71%, Marel um 0,66% og Landbankinn um 0,31%

Gengi krónu veiktist um 0,12% og er 120,9 stig, samkvæmt upplýsingum Kaupþings.