Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 0,8% og er 4.281 stig við lok markaðar.

Gengi krónu hefur styrkst um 1,2  og er 152,2 stig en gjaldeyrismarkaðir eru enn opnir, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir dagsins.

Veltan á hlutabréfamarkaði nam 1,5 milljarði króna. Velta á skuldabréfamarkaði nam 13,6 milljöðrum króna.

Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu eru grænar. Litið til Norðurlandanna, þá hækkaði danska vísitalan OMXC um 2,9%, norska vísitalan OBX um 1,4% og sænska vísitalan OMXS um 1,8%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Sérfræðingar segja við Dow Jones fréttaveituna að lægra olíuverð auk orða Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hafi meðal annars haft  jákvæð áhrif á hlutabréfamarkaði.

Í Hálffimm fréttum Kaupþings í gær er haft eftir Bernanke að fjárfestingabankar, sem og aðrir bankar, muni að öllum líkindum geta framlengt í lánum sínum við þarlend peningamálayfirvöld ef nauðsyn krefur þegar kemur að endurgreiðslum í september. Umræddir bankar eru m.a. Lehman Brothers og Merrill Lynch.

Century Aluminium [ CENX ], móðurfélag Norðuráls, rýkur upp um 8,4. Í gær tilkynnti félagið um að það ætlar að losa sig undan öllum framvirkum samningum á áli við Glencore, stærsta hluthafa þess.

„Við lausn undan samningunum telur félagið sig betur sett til að njóta álverðsins sem nú er í methæðum. Til að losna undan samningunum greiðir Century Glencore með 978,4 milljónir dollara í nýjum atkvæðalausum breytilegum bréfum og 730,2 milljónir dollara í reiðufé. Félagið verður að fullu laust undan framvirku samningunum um miðjan júlí,“ stendur í Vegvísi Landsbankans í gær.