Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,2% og er 5.245 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Helstu vísitölur í Evrópu er grænar, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Veltan á hlutabréfamarkaði nam 4,7 milljörðum króna, þar af 1,1 milljarður króna vegna yfirtöku Exista á Skiptum.

Century Aluminium [ CENX ] hækkaði um 4,3%, Exista [ EXISTA ] hækkaði um 2,2%, Landsbankinn [ LAIS ] sömuleiðis, Spron [ SPRON ] hækkaði um 1,9% og Kaupþing  [ KAUP ] hækkaði um 1,7%.

Skipti lækkaði um 3,5% , Flaga Group [ FLAGA ] lækkaði um 1,4%, Eik banki [ FO-EIK ] lækkaði um 1,4%, Straumur [ STRB ]lækkaði um 1% og Alfesca [ A ] lækkaði um 0,9%.