Úrvalsvísitalan hækkar um 1,35% og er 6.232,64 stig.

Kögun hækkar um 6,08% í kjölfar yfirtökutilboðs félags í eigu Dagsbrúnar í hlutafé félagsins. Icelandic Group hækkar um 5,56%, Bakkavör Group hækkar um 4,63%, Marel hækkar um 3,68% og Alfesca hækkar um 2,50%.

Tvö fyrirtæki lækka í dag. Það er FL Group sem lækkar um 2,83% og Atlantic Petroleum sem lækkar um 0,75%.

Gengi krónunnar stendur í stað, frá því í gær. Dollar hækkaði um 0,39% gagnvart krónu og evra hækkaði um 0,42% gagnvart krónu.