Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 1,5% og er 4.912 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 5,4 milljörðum króna.

Danska vísitalan OMXC hækkaði um 0,4%, norska vísitalan OBX hækkaði um 2,8% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 1,2%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Spron [ SPRON ] hækkaði um 3,5%, Exista [ EXISTA ] hækkaði um 3,3%, Landsbankinn [ LAIS ] hækkaði um 2,2%, Glitnir [ GLB ] hækkaði um 2% og Bakkavör Group [ BAKK ] hækkaði um 1,8%.

FL Group [ FL ] lækkaði um 1,9%, Eik banki [ FO-BANK ] lækkaði um 1,2%, Eimskip [ HFEIM ] lækkaði um 1,2%, Flaga Group lækkaði [[ FLAGA ]] um 1,1% og Föroya banki [ FO-BANK ] lækkaði um 0,7%. Það gerði Century Aluminium [ CENX ] einnig.

Gengi krónu [ OMX ISK ]  styrktist um 0,4% og er 136,5 stig.