Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,9% og er 5.185 stig við lok markaðar. Gengi krónu styrktist um 2,4% og er 150,9 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 10 milljörðum króna og 36,9 milljörðum króna á skuldabréfamarkaði.

Exista [ EXISTA ] hækkaði um 6%, Eik banki [ FO-EIK ] hækkaði um 5,7%, Spron [ SPRON ] hækkaði um 5,2%, Atlantic Airways [ FO-ATLA ] hækkaði um 5% og Bakkavör Group [ BAKK ] hækkaði um 4,3%.

Skipti og Össur [ OSSR ] lækkuðu um 0,8% og Föroya banki [ FO-BANK ] lækkaði um 0,7%.