Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,94% og er 7.795 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Exista hækkaði um 4,97%, Bakkavör Group hækkaði um 3,98%, Landsbankinn hækkaði um 3,33%, FL Group hefur hækkað um 3,31% og Kaupþing hækkaði um 3,22%.

Ekkert félag lækkaði.

Danska vísitalan OMC hækkaði um 1,62% í dag, Enska vísitalan FTSE100 hækkaði um 3,5%, norska vísitalan OBX hækkaði um 2,72% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 1,52%.

Gengi krónu veiktist um 0,78% og er 125 stig.