Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 5,3% í dag og stóð við lok markaða í 4.057 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,4% í gær en rauk upp strax opnun í morgun og er endaði nú á ný yfir 4.000 stig, en á miðvikudag í síðustu viku fór hún undir 4.000 stig í fyrsta skipti í næstum 3 ½ ár.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Þar sést hvernig Exista [ EXISTA ] leiddi hækkanir dagsins en Century Aluminum [ CENX ] var eina félagið sem lækkaði í dag.

Velta með hlutabréf var um 11,5 milljarðar. Þar af voru um 3,4 milljarðar með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og annað eins í Glitni [ GLB ], tæpir 2 milljarðar með bréf í Kaupþing [ KAUP ], rúmlega milljarður með bréf í Straum [ STRB ] og  um 730 milljónir með bréf í Exista.

Krónan hefur styrkst um 1,7% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan nú í 173,1 stigi.