Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,28% og stóð í 8.876 í lok dags, samkvæmt upplýsingum Markaðsvaktar Mentis, en vísitalan hefur aldrei verið hærri.

Heildarveltan nam 14 milljörðum króna.

Föryea Bank hækkaði um 2,59%, Landsbankinn um 2,25%, Glitnir um 1,53%, Kaupþing um 1,46% og Össur um 1,41%.

Atlantic Petroleum lækkaði um 0,83%, Eimskipafélagið um 0,5% og Century Aluminum um 0,05%.

Krónan hefur styrkst um 0,85% og stóð í 111 í lok dags.