Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,9% og er 4.783 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Flestar helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu einnig í dag. Norska vísitalan lækkaði um 2,9% og danska vísitalan OMXC lækkaði um 0,4%.

Það eru þó græn strá hér og þar. Sem dæmi þá hækkaði þýska vísitalan DAX um 0,2%, finnska vísitalan HEXTech hækkaði um 0,3% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 0,3%.