Úrvalsvísitalan lækkaði um 1% og er 4.702 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Veltan á hlutabréfamarkaði nam um 3,2 milljörðum króna en þar af voru um 900 milljónir með bréf í Landsbankanum og 800 milljónir með bréf í Kaupþing.

Danska vísitalan OMXC lækkaði um 1%,  sænska vísitalan OMXS lækkaði um 0,9% en norska vísitalan OBX stóð í stað, samkvæmt upplýsingum frá Euroland