Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,53% í dag og stendur nú í 883 stigum.

Vísitalan hækkaði um 0,1% í gær en lækkaði jafnt og þétt í dag.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hefur lækkað um 0,4% og stendur nú í 328 stigum.

Straumur leiddi lækkanir dagsins en félagið lækkaði um 6,6%, en velta með bréfin var 42 milljónir. Marel lækkaði um 2,3% en engin breyting varð á öðrum félögum í nýju Úrvalsvísitölunni.