Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,14% og er 5.662,73 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Þetta er þriðji dagurinn í röð sem úrvalsvísitalan lækkar. ?Ljóst er að tilkynning alþjóðlega matsfyrirtækisins S&P fyrr í vikunni um breytingu á horfum á lánshæfi íslenska ríkisins hafði neikvæð áhrif á fjárfesta," segir greiningardeild Glitnis.

Hún segir að lækkunin komi í kjölfar hækkunar sex viðskiptadaga í röð sem nam samtals 8,3% og segir eðlilegt að fjárfestar innleysi hagnað eftir mjög skarpar hækkanir á fáum dögum.

?Þegar horft er á þróun ICEX-15 á undanförnum mánuðum sést að vísitalan hækkar og lækkar á víxl um nokkur prósentustig á fáeinum dögum. Markaðurinn virðist fréttadrifinn og tekur að okkar mati minna mið af rekstrarhorfum fyrirtækja," segir greiningardeildin.

Straumur-Burðarás hækkaði um 1,12% og er eina félagið sem hækkaði í dag.

Landsbankinn lækkaði um 2,73%, Kaupþing banki lækkaði um 1,68%, FL Group lækkaði um 1,54%, Alfesca lækkaði um 1,52% og Dagsbrún lækkaði um 1,49%.

Gengi krónu hefur veiktist um 0,47% og er 129,22 stig, samkvæmt upplýsingum frá Landsbankanum.

Bandaríkjadalur hækkaði um 1,19% gagnvart krónu og er skráður 73,68. Evra hækkaði um 0,28% og er skráð 93,45.