Úrvalsvísitalan  [ OMXI15 ] lækkaði um 0,3% og er 5.034 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 3,1 milljarði króna.

Danska vísitalan OMXC hækkaði um 0,3%, norska vísitalan OBX hækkaði um 0,7% og sænska vísitalan OMXS hækkaði um 1,8%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.

Föroya banki [ FO-BANK ] hækkaði um 0,7%, 365 [ 365 ] hefur hækkað um 0,6%, Kaupþing [ KAUP ] hefur hækkað um 0,5%, Alfesca [ A ] hækkaði um 0,3% og Eik banki [ FO-EIK ] hækkaði um 0,2%.

Glitnir [ GLB ] lækkaði um 1,96%, Eimskip [ HFEIM ] lækkaði um 1,6%, Atlantic Airways [ FO-ATLA ] lækkaði um 1,5%, Century Aluminium [ CENX ]  lækkaði um 1,3% og Bakkavör Group [ BAKK ] lækkaði um 1,1%.

Gengi krónu styrktist um 0,8% og er 128,5 stig.