Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,66% og 5.895 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvaktinni. Veltan nam 3.159 milljónum króna.

?Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands, ICEX-15, lækkaði um 1,2% á föstudaginn eftir að hafa hækkað 12 viðskiptadaga í röð," segir greiningardeild Glitnis.

?Nú takast á tvö ólík sjónarmið, skammtíma- og langtímasjónarmið. Þegar hlutabréf hafa hækkað um 12% á jafnmörgum dögum er eðlilegt að sumir fjárfestar kjósi að innleysa hagnað enda endurspeglar hækkunin svipaða ávöxtun og reikna má með á heilu ári. Innlausn hagnaðar kann að vera skynsamlegt skref, einkum ef fjárfestir telur að markaðurinn fari offari og sigli á bjartsýnisöldu sem byggi á veikum grunni. Slík ákvörðun getur einnig verið skynsamleg ef kaupin eru fjármögnuð með lánsfé.

Hinsvegar miðast hefðbundið verðmat fyrirtækja á væntu sjóðstreymi þeirra í framtíðinni og slíkt verðmat kann að sýna að ákveðið fyrirtæki sé mun verðmætara en markaðurinn endurspeglar þá stundina. Fjárfestar sem líta á hlutabréfakaup sem langtímafjárfestingu kunna þannig að líta fram hjá skammtímasveiflum í verði og horfa frekar til mögulegrar hækkunar á komandi árum," segir greiningardeildin.

Atlantic Petroleum hækkaði um 2,66% og Avion Group hækkaði um 0,3%.

Atorka Group lækkaði um 1,61%, Marel lækkaði um 1,3%, Össur lækkaði um 1,18%, Dagsbrún lækkaði um 1,15% og FL Group um 1,11%.

Gengi krónu veiktist um 0,08% og er 123,3 stig við lok markaðar.