Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] lækkaði í dag um 0,7% og stóð við lok markaða í 4.277 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var um 2,4 milljarðar. Þar af voru um 800 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 610 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] og um 580 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan stendur í stað frá því í morgun en hefur dansað sitt hvoru megin við núllið í dag en gengisvísitalan er nú 159 stig.