Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,4% í dag og er 4.114 stig við lok markaða. Gjaldeyrismarkaður er enn opinn en krónan hefur veikst um 0,6% það sem af er degi og er 160,2 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.
Veltan á hlutabréfamarkaði nam 3,3 milljörðum króna. Þar af námu stök utanþingsviðskipti með bréf Glitnis fyrir 1,8 milljarða króna.
Icelandair [ ICEAIR ] hækkaði mest, líkt og sjá má á meðfylgjandi töflu, eða um 1,2%. Og Exista [ EXISTA ] lækkaði mest eða um 3,6%.
Danska vísitalan OMXC lækkaði um 0,3%, norska vísitalan OBX lækkaði um 1,3% og sænska vísitalan OMXS lækkaði um 2,3%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.