Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 2% og stóð við lok markaða í 3.329 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 16,6% í gær en tók að hækka lítillega við opnun markaða í morgun. Sú hækkun varði þó aðeins fyrstu mínúturnar en korteri eftir lokun fór vísitalan niður á við.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga. Exista leiddi lækkanir dagsins og lækkaði um 10,8%. Þá lækkaði Straumur um 6,4% og Bakkavör um 6,3%.

Velta með hlutabréf var rúmlega 13,8 milljarðar króna og þar af voru rúmir 7,2 milljarðar króna með bréf í Landsbankanum en í morgun fóru fram mikil viðskipti með bréf í félaginu.

Þá er velta fyrir um 4 milljarða króna með bréf í Kaupþingi, tæpa 1,2 milljarða með bréf í Glitni og um 900 milljónir með bréf í Straum en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst nokkuð það sem af er degi eða um 3,2% og er gengisvísitalan nú 203 stig. Krónan hefði um tíma veikst um rúm 5% þannig að nokkuð hefur dregið úr veikingunni.

Þetta er í fyrsta skipti sem gengisvísitalan fer yfir 200 stig en gjaldeyrismarkaðir eru enn opnir.