Úrvalsvísitalan lækkaði um 5,9% í dag og stóð við lok markaða í 3.133 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2% í gær og hélt áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun. Lægst fór Úrvalsvísitalan í 3.085 stig í dag.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög, Atlantic Patreoleum og Eimskip hækkuðu í dag.

Nokkur félög lækkuðu talsvert. Þannig lækkaði Glitnir um 13,9%, Exista um 13,8%, Spron um 13,2 og Bakkavör um 10,5%.

Velta með hlutabréf var rétt tæpir 13 milljarðar króna og þar af voru um 5 milljarður króna með bréf í Landsbankanum í rúmum 470 viðskiptum sem var talsvert yfir fjölda viðskipta í öðrum félögum.

Þá er velta fyrir rúma 4,9 milljarða með bréf í Kaupþingi og um 840 milljónir með bréf í Straum en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst það sem af er degi um 2,8% og er gengisvísitalan nú 207,7 stig. Í gær fór gengisvísitalan í fyrsta skipti yfir 200 stig og um tíma í dag fór hún í 213,1 stig. Gjaldeyrismarkaðir eru þó enn opnir.