Úrvalsvísitalan stóð í stað við lok markaða í dag og stendur í 641 stigi samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,7% í gær en hreyfðist lítið í dag. Um tíma fór hún þó í 642,6 stig en aðeins í stutta stund.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var um 19 milljónir króna en þar af voru um 8,5 milljónir með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir um 4,5 milljónir króna í Össur og rúmlega 1,7 milljónir króna í Bakkavör.