Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 1,4% í dag og stóð við lok markaða í 926 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hafði þó hækkað 2,5% fyrr í dag og stóð um tíma í 963 stigum en líkt og í gær lækkaði hún töluvert seinni part dags.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) lækkaði um 2,5% og stendur nú í 302 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en aðeins 6 félög hreyfðust í dag, tvö hækkuðu og fjögur lækkuðu.

Það var helst Atlantic Patroleum sem leiddi lækkanir dagsins en félagið lækkaði um 6,5%. Þá lækkaði Straumur (sem vegur þungt í Úrvalsvísitölunni) um 3,2%.

Velta með hlutabréf var um 570 milljónir króna en þar af voru rúmar 304 milljónir króna með bréf í Straum en talsverður fjöldi viðskipta var með bréf í Straum, annan daginn í röð, eftir að bankinn tilkynnti um kauprétti starfsmanna félagsins í gær.

Þá var velta fyrir rúmar 144 milljónir króna með bréf í Marel, rúmar 110 milljónir króna með bréf í Össur en sáralítil velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag um 10,6 milljörðum króna.