Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 0,1% í dag og var við lok markaða 4.513 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf var um 1,2 milljarðar en þar af voru um 300 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], 260 milljónir með bréf í Straumi [ STRB ] og 250 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ].

Krónan hefur styrkst um 1,1% það sem af er degi og stendur gengisvísitalan nú í 162,9 stigum.