Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri hefur haft í mörg horn að líta á fyrstu dögum í nýju starfi. Ólöf Ýrr hefur notað tímann til að kynnast starfsfólki og á föstudaginn var hún á skrifstofu Ferðamálastofu á Akureyri. Með í för var einnig Helga Haraldsdóttir, skrifstofustjóri ferðamála í iðnaðarráðuneytinu en eins og fram hefur komið fluttust ferðamálin á milli ráðuneyta nú um áramótin.