Verslunin Indiska opnar þann 8. maí næstkomandi í Kringlunni. Verslunarkeðjan á sér 112 ára sögu en forstjóri fyrirtækisins, Sofie Gunolf, leggur mikið upp úr samfélagslegri ábyrgð og mikið eftirlit er með verksmiðjum fyrirtækisins.

Dagbjört Guðmundsdóttir, Guðrún Scheving Thorseinsson, Sigríður Ragna Jónsdóttir og Sigrún Andersen standa fyrir opnuninni hér á Íslandi