Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,1% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 3.293 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2% í gær og hélt áfram að lækka strax við opnun markaða í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög, Eimskip og Atlantic Patreoleum hafa hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 2,2 milljarðar króna og þar af eru um einn milljarður króna með bréf í Landsbankanum.

Þá er velta fyrir um 670 milljónir með bréf í Kaupþingi en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst það sem af er degi um 1,3% og er gengisvísitalan nú 204,7 stig. Í gær fór gengisvísitalan í fyrsta skipti yfir 200 stig.