Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 4.309 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra.

Lítil velta er með hlutabréf eða um 160 milljónir. Þar af eru um 60 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ], 35 milljónir með bréf í Össur [ OSSR ] og 25 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] en mun minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan hefur styrkst um 0,7% frá opnum gjaldeyrismarkaða og stendur gengisvísitalan í 155,5 stigum.