Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,8% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun. Þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 stendur vísitalan í 4.692 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæplega 900 milljónir en þar af eru um 250 milljónir með bréf í Glitni og 230 milljónir með bréf í Landsbankanum.