Hlutabréf hafa lækkað síðan opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni í morgun og hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 0,4%.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög hafa hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er aðeins um 200 milljónir en þar af eru um 90 milljónir með bréf í Kaupþingi.

Krónan hefur aftur á móti styrkst um 0,2% frá því í morgun.