Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,2% síðan opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.631 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Föroya banki hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er um milljarður.

Þá hefur krónan veikst um 0,4% frá því í morgun.