Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hækkaði um 2,3% strax við opnum viðskipta í Kauphöllinni og stendur nú í 5.427 stigum.

Spron [ SPRON ] hefur hækkað mikið strax í upphafi eða um 8,4%. Þá hefur Exista [ EXISTA ] hækkað um 4% og FL Group [ FL ] um 3,7%.

Aðeins eitt fyrirtæki hefur lækkað en Flaga [ FLAGA ] hefur lækkað 5%.

Þónokkur viðskipti hafa verið með hlutabréf strax í upphafi eða um 5,2 milljarðar. Þar af eru um 3,9 milljarðar með bréf í Skipti en sem kunnugt er gerði Exista yfirtökutilboð í félagið í mars og er nú verið að gera upp kaup félagsins á Skipti að einhverjum hluta.