Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,7% í vikunni og er 4.747 stig við lok markaðar í dag, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Föroya banki  hækkaði mest í vikunni eða um 6,6%.

Athygli vekur að FL Group kemst á lista yfir félög sem hækkuðu mest í vikunni því skammt er í að fjárfestingafélagið verði afskráð af hlutabréfamarkaði.