Gengi krónu styrktist um 1,1% síðustu sjö daga og er 146,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Sé hins vegar litið tvær vikur aftur í timann hefur krónan styrkst um 7,8%.

Töluvert munaði á veltu á gjaldeyrismarkaði  milli daga í vikunni.  Mesta veltan var í gær og var hún 40 milljarðar króna en minnsta veltan var síðastliðinn þriðjudag eða 15,7 milljarðar króna. Þess ber þó að geta að á þriðjudag er miðað við tölur skömmu fyrir lok markaðar, sem fengust úr Vegvísi Landsbankans.