Hið íslenska i8 gallerí sýnir á Armory Show í New York sem opnar í dag og stendur til sunnudags. Armory Show er stærsta listamessa New York-borgar en hún var fyrst haldin fyrir 20 árum síðan.

Á meðal þess sem til boða verður hjá galleríinu eru ný verk eftir Ragnar Kjartansson sem byggð eru á nýlegu framlagi hans til Feneyjartvíæringsins.

Önnur verk sem i8 sýnir eru eftir Rögnu Róbertsdóttur, Ólaf Elíasson, Alicja Kwade, Hörð Ágústsson, Eggert Pétursson, Egil Sæbjörnsson, Janice Kerbel, Ingólf Arnarsson, og Þór Vigfússon.