Tilboð Íslenskra aðalverktaka varð hlutskarpast í útboði bandaríska varnarmálaráðuneytisins á hönnun og framkvæmdum á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða framkvæmdir vegna flughlaða og tengdra verkefna sem fjármálaráðuneytið, sem staðsett er í Pentagon byggingunni í Washington, fjármagnar alfarið.

Tilboðið, sem hljóðaði upp á tæpar 39 milljónir Bandaríkjadala, eða 5,3 milljarða íslenskra króna, var undir kostnaðaráætlun varnarmálaráðuneytisins en hún hljóðaði upp á 57 milljónir dala. Það samsvarar ríflega 7,8 milljörðum íslenskra króna.

Um þrjú verkefni er að ræða. Í fyrsta lagi hönnun og verkframkvæmdir við stækkun á flughlaði innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Í öðru lagi hönnun og verkframkvæmdir fyrir færanlegar gistieiningar. Í þriðja lagi hönnun og verkframkvæmdir vegna færslu á flughlaði fyrir hættulegan farm. Áætluð verklok eru í febrúar 2023.

Útboðið er auglýst í júlímánuði 2019, en að undangengnu forvali var valið úr ákveðnum fjölda íslenskra og bandarískra fyrirtækja sem heimilt var að bjóða í verkið og varð ÍAV hlutskarpast. Auk ofangreindra framkvæmda standa nú yfir eða eru í undirbúningi framkvæmdir sem hafa verið samþykktar á öryggissvæðinu.

Þar má nefna breytingar og endurbætur á flugskýli 831, byggingu þvottastöðvar fyrir flugvélar og viðhald og endurbætur á flughlöðum, akstursbrautum og ljósakerfum. Auk þess hafa verið gerðar umfangsmiklar uppfærslur á ratsjárkerfunum og kerfisbúnaði í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

Samanlagt er því um að ræða allt að 21,5 milljarða króna á tímabilinu 2018-2023 sem að mestum hluta er fjármagnað af Atlantshafsbandalaginu og bandarískum stjórnvöldum.