Hafin er bygging nýrrar verslunarmiðstöðvar í Fjarðabyggð. Byggingin verður 2.500 fermetrar að stærð og hefur hlotið nafnið Molinn. Molinn mun rísa í miðbæ Reyðarfjarðar, milli Búðareyrar og Strandgötu. Framkvæmdir fara strax á fullt enda gera áætlanir ráð fyrir að verslunarmiðstöðin taki til starfa strax á þessu ári, eða nánar til tekið í desember. Þegar liggur fyrir að lágvöruverslunin Krónan verði þar til húsa.

Landsbanki Íslands mun flytja útibú sitt á Reyðarfirði í Molann sem og Verkfræðistofan Hönnun. Þá verða bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar í húsinu ásamt fjölmörgum öðrum aðilum sem viðræður standa nú yfir við. Er m.a. reiknað með að þar verði sportvöruverslun, lyfjaverslun sem og fleiri sérverslanir. Smáragarður ehf verður eigandi verslunarmiðstöðvarinnar.