Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) afa sagt upp 151 starfsmanni en 19 starfsmönnum vil viðbótar verða boðin önnur störf innan félagsins eða lækkað starfshlutfall.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍAV.

Samkvæmt tilkynningunni koma uppsagnirnar til vegna mikils samdráttar í íslensku efnahagslífi og afleiðinga fjármálakreppunnar, eins og það er orðað í tilkynningunni.

Þá kemur fram að uppsagnirnar ná til starfsmanna úr öllum þeim starfsstéttum sem starfa hjá félaginu en Vinnumálastofnun hefur verið tilkynnt um uppsagnirnar.

„Starfsfólki sem hefur verið sagt upp störfum verður veitt ráðgjöf varðandi réttindi sín, aðstoðað við atvinnuleit og aðra tengda þætti. Forsvarsmenn ÍAV munu leitast við að liðsinna öllum sínum starfsmönnum hvað best þeir geta,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt í tilkynningunni:

„Á örfáum mánuðum hafa rekstrarforsendur fyrirtækja í verktaka- og byggingariðnaði snúist hratt til verri vegar. Eftir fall bankanna hefur staðan versnað enn frekar og ríkir óvissa um framhald margra verkefna. Opinberir aðilar hafa hætt við eða frestað fyrirhuguðum útboðum á ný framkvæmdum og einstaklingar og fyrirtæki hafa lagt til hliðar áform sín um framkvæmdir að sinni. Í ljósi aðstæðna er það mat stjórnenda ÍAV að við blasi verulegur samdráttur á verktaka- og byggingamarkaði á næstu mánuðum.“

Eftir uppsagnirnar munu um 400 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu auk nokkur hundruð starfsmanna undirverktaka.