Íslenskir aðalverktakar (ÍAV) hafa stefnt 105 Miðborg og Íslandssjóðum, dótturfyrirtækjum Íslandsbanka, fyrir 3,8 milljörðum króna vegna ágreinings um uppbyggingu lóða á Kirkjusandi. Þetta kemur fram í fyrsta ársfjórðungsuppgjöri Íslandsbanka fyrir árið 2021.

Undanfari málsins er sá að þann 19. febrúar síðastliðinn rifti 105 Miðborg samningnum við ÍAV og hafa aðrir verktakar nú verið ráðnir inn í staðinn fyrir. Ástæðan sem 105 Miðborg gaf upp fyrir rituninni voru vanefndir af hálfu ÍAV. Þann 3. maí síðastliðinn stefndu svo ÍAV 105 Miðborg og Íslandssjóðum fyrir 3,8 milljarða vegna tjónsins sem að fyrirtækið hefur orðið af riftuninni.

Ósættið snýr að ákvæðum verksamnings um byggingu þriggja húsa á Kirkjusandsreitnum. ÍAV hefur þegar skilað af sér tveimur af þremur byggingum og taldi að kaupandi verksins ætti að greiða fyrir hluta verksins sem voru utan samningsins. Þá taldi ÍAV að taka þyrfti tillit til utanaðkomandi þátta, einkum Covid-19, við ákvörðun viðbótarkostnaður og verktíma.

Sjá einnig: Tilgangur riftunar að valda ÍAV tjóni