Alþjóðlega tæknifyrirtækið IBM hyggst kynna framtíðarsýn sína í samskiptalausnum á Lotusphere, ráðstefnu sem haldin verður hér á landi næsta fimmtudag.
Má þar nefna lausnir sem auðvelda fjarfundi innan fyrirtækja, spara gagnamagn og ókeypis skrifstofuhugbúnað sem býr yfir ritvinnslu, töflureikni og glærusmið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja en á ráðstefnunni gefst fólki einstakt tækifæri til þess að kynna sér samskiptalausnir framtíðarinnar frá IBM.
Fram kemur að fyrirtækið heldur samskonar ráðstefnur víða um heim þar sem það kynnir hvað sé framundan í IBM Lotus hópvinnulausnum. Ráðstefnan, sem fram fer í Salnum í Kópavogi þann 19. mars, er haldin á vegum Nýherja og TM Software, sem er dótturfélag Nýherja.
Á Lotusphere verður sagt frá nýjustu útgáfu Lotus Notes, tölvupóst- og samskiptaforritsins, og Lotus Sametime rauntímaspjalli sem gerir starfsfólki mögulegt að ná sambandi við samstarfsfélaga sína, hvort sem það er um tölvu eða farsíma
Þá verður greint frá Lotus Symphony, sem er ókeypis skrifstofuhugbúnaður og býr yfir öflugri ritvinnslu, töflureikni og glærusmið. Ennfremur mun IBM greina frá nýjungum fyrir Lotus Notes í farsíma, en Lotus Traveler er ókeypis fyrir þá farsímanotendur sem eru með Lotus Notes.
Fjöldi erinda er á ráðstefnunni meðal annars erindi Jason Dumont framkvæmdastjóra hjá IBM Lotus sem mun fjalla um framtíðarsýn IBM í Lotus hópvinnulausnum.
Aðgangur er ókeypis á ráðstefnuna. Hægt er að skrá sig á heimasíðu Nýherja.