23.146 einstaklingar hafa afþakkað greiðslujöfnun fasteignaveðlána Íbúðalánasjóðs á 38.087 lánum.

Þetta kemur fram á vef Íbúðalánasjóðs en í gær rann út frestur til að afþakka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga í desember, en öll slík lán voru nýlega með lögum sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun.

Þetta eru 47,7% þeirra einstaklinga sem eru lántakar hjá Íbúðalánasjóði og 46,7% af fjölda lána. Þar af er 14.709 lántakendur í Reykjavík og 8.437 á landsbyggðinni..