Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 5 milljarða króna að nafnverði.

Íbúðalánasjóður áskilur sér rétt til að hækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Íbúðalánasjóðs við KB banka, Glitni, Landsbanka Íslands, Straum ? Burðarás og MP fjárfestingabanka hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð, segir í tilkynningunni.

Útboðsfjárhæð: 3.000.000.000. (Þrír milljarðar króna)

Lágmarkstilboð: Samkvæmt aðalmiðlarasamningi dags 30/6/2006.

Lánstími: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004

Útgáfudagur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004

Endurgreiðslur: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004

Nafnvextir: Fastir vextir 3,75%

Grunnvísitala: Sjá skráningarlýsingu bréfanna dags. 28/6/2004 og 12/11/2004

Einingar: 1 kr. rafbréf í hverjum flokki fyrir sig.

Þóknun: Íbúðalánasjóður greiðir þóknun 0,15%

Verð: Tilboð skal innihalda verð, með og án þóknunar, tilboðsfjárhæð og ávöxtunarkröfu.

Fyrirkomulag: ?American" uppboðsaðferð þar sem hver og einn tilboðsgjafi sækist eftir sínu verði og niðurstöður útboðs geta því orðið á fleiri en einu verði.

Uppgjör sölu: Uppgjör fer fram, mánuudaginn 6. nóvember 2006