Í kjölfar útboðs íbúðabréfa í gær hefur Íbúðalánasjóður ákveðið að halda vöxtum á nýjum húsnæðislánum óbreyttum.

Vextir á nýjum lánum með uppgreiðsluákvæði verða 4,9% og 5,4% án uppgreiðsluákvæðis.

Vegnir vextir í útboðinu voru 4,43%.