Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmlega 3,3 milljörðum króna í febrúar. Þar af voru tæplega 2,3 milljarðar vegna almennra lána og tæpur 1,1 milljarður vegna leiguíbúðalána.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs en heildarútlán sjóðsins drógust því saman um tæp 6% frá fyrra mánuði. Meðallán almennra lána voru um 10,7 milljónir króna í febrúar sem sambærilegt fyrri mánuð.

Þá kemur fram að heildarvelta íbúðabréfa í febrúar nam tæpum 81 milljarði króna sem er aukning um tæp 21% frá fyrra mánuði. Heildarvelta bréfanna nemur 147,5 milljörðum króna það sem af er árinu 2009.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 8,0 milljörðum króna í febrúar og voru afborganir vegna íbúðabréfa stærsti hluti þeirra.

Í mánaðarskýrslunni kemur fram að þann 5. febrúar samþykkti stjórn Íbúðalánasjóðs á fundi sínum að hafin yrði könnun á stofnun nýs flokks íbúðabréfa með lengri líftíma en núverandi útgáfa býður upp á. Slík útgáfa fellur vel að greiðsluflæði sjóðsins en almenn útlán hans eru nú til allt að 40 ára og er í dag hægt að lengja þau til allt að 70 árum að vissum skilyrðum uppfylltum.

Leiguíbúðalán eru til allt að 50 ára og fer hlutfall þeirra hækkandi af heildarútlánum sjóðsins. Íbúðalánasjóður mun þó áfram styðjast við útgáfu núverandi flokka íbúðabréfa, þ.e. HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Eftir 15. september 2009 mun Íbúðalánasjóður ekki lengur eiga möguleika á að auka frekar við útgáfu HFF150914 þar sem ekki er heimilt að gefa út verðtryggð skuldabréf til skemmri tíma en 5 ára.