Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins breytist.

Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,9% (voru 5,05%) en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis (voru 5,7%).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð en hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 11. ágúst 2008.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var fyrir helgi ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa.  Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,43%.

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.