Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að breyta útlánavöxtum. Vextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 5,20% en 5,70% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 21. apríl 2008. Þetta kemur fram á vef Íbúðarlánasjóðs.

Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi.

Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 18. apríl s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,73%.

Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur sent félags- og tryggingamálaráðherra tillögu um að vaxtaálag sjóðsins vegna uppgreiðsluáhættu verði hækkað um 0,25%, úr 0,25% í 0,50%. Ráðherra hefur með bréfi, dags. 10. apríl 2008 fallist á þá tillögu.

Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50% samkvæmt því sem áður segir.

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins breytist sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 5,20% en 5,70% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 21. apríl 2008.