Íbúðalánasjóður hefur lokið útboði íbúðabréfa, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Alls bárust tilboð að nafnvirði 9,75 milljarður króna. Ákveðið var að taka tilboðum í íbúðabréf HFF150644 að nafnvirði 3,1 milljarðar króna.

Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,11% og 4,12%, með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 29. desember 2005.