Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði óbreyttir.
Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða áfram 4,9% en 5,4% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð.
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggist á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 22. ágúst 2008 ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 4,44%.
Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna útlánaáhættu 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%.